
Þeir í Fréttablaðinu voru að spyrja fólk um uppáhalds Evróvisjónlagið.
Ég ætla að vera með.
Þetta lag er framlag Frakklands frá 1991. Tapaði naumlega fyrir hryllilegu geldpoppi frá hinni sænsku Carolu, fékk raunar jafnmörg stig.
Söngkonan heitir Amina Annabi, er ættuð frá Túnis, kom hingað til Íslands skömmu síðar og hélt fína tónleika. Svo var haldið partí, hún var ótrúlega skemmtileg og flott. Þetta var þegar snillingurinn Jacques Mer var sendiherra Frakklands, einlægur Íslandsvinur – og samskipti landanna með miklum blóma.
Vinur minn einn varð skelfilega ástfanginn af henni, svo mjög að ég held það hafi riðlað allri tilveru hans.
Hún lék líka í kvikmyndum, meðal annars í mynd eftir Bertolucci sem nefnist The Sheltering Sky.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=_LGyYmsAkpM]
Og hér er Amina að syngja með snillingnum Goran Bregovic.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=3ysOkiS3_tU]
Ég veit ekki hvað hefur orðið af Aminu. Evróvisjón er ekki alltaf leið til mikils frama. Ég man til dæmis eftir Írum sem unnu eitt árið með nauðaómerkilegt lag. Voru svo mættir til að skemmta á Píanóbarnum sáluga í Hafnarstræti rúmu ári síðar.