
Það er alveg rétt hjá Þór Saari.
Það er algjör óþarfi að blanda guði inn í þinghaldið.
Þetta eru svið sem eiga ekki að blandast saman í stjórnmálum, hið veraldlega og hið trúarlega.
Hvorki á Íslandi né í Íran.
Annars fékk ég bréf frá sjálfstæðismanni í dag sem skipti formönnum nefnda úr stjórnarliðinu í tvennt.
Reynslulaust hugsjónafólk og óábyrgt hugsjónafólk.
Hann taldi að af þessu stafaði nokkur hætta, að þingnefndir yrðu brátt óstarfhæfar vegna þessa.
Það má svosem vel vera.
Kannski er best að halda bara áfram að veðja á karríeristana og framapotarana – við getum verið viss um að þeir synda bara með straumunum?