
Dálkahöfundurinn hvassyrti, Simon Heffer, skrifar í Daily Telegraph að breska þingið hafi aldrei sokkið dýpra.
Það þurfi anda Olivers Cromwell til að hífa það upp úr drullunni, annars sé kannski rétt að fara að dæmi Guy Fawkes sem á sínum tíma reyndi að kveikja í þinghúsinu.
Heffer segir að almenningur í Bretlandi vilji að þingmenn segi af sér og verði dregnir fyrir dóm.
Gordon Brown segir að allar kostnaðarkröfur þingmanna verði skoðaðar. Það fjarar enn undan þeim góða manni.
Og fyrst við erum að tala um svona mál, hvað varð aftur um umræðuna um styrkjamálin hérna heima?
Hvarf hún bara?
Ætluðu flokkarnir ekki að fara að gera þetta allt opinbert?