fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Bókhaldsbrellur, fjársvik og hvítflibbabrot

Egill Helgason
Þriðjudaginn 12. maí 2009 16:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fundurinn með William K. Black í Háskólanum í gær hefur fengið litla umfjöllun í fjölmiðlum. Það er miður, því margt merkilegt kom þar fram – ég tel að flestir fundarmenn geti verið sammála um það. Þekking hans á bókhaldsbrellum, fjársvikum og hvítflibbabrotum er óviðjafnanleg, fyrir utan að maðurinn er skarpur og skemmtilegur.

Már Wolfgang Mixa hefur tekið saman nokkra punkta úr máli Blacks á bloggi sínu:

— — —

Fyrirlestur William Black í gær var afar áhugaverður.  Hann telur að bókhaldskúnstir sé helsta tól fjárglæframanna við að koma fjármagni kerfisbundið frá almenningi til örfárra manna.  Aðferðin er í stuttu máli þessi:

  • Veita fólki lán sem ólíklegt er að geti greitt þau til baka
  • Slík lán fylgja almennt há gjöld sem bókfærast strax sem hagnaður
  • Gíra starfsemina eins mikið og unnt er þannig að hver króna skapi enn meiri hagnað
  • Viðhalda örum vexti á meðan að hagvöxtur er jákvæður
  • Þetta leiðir til mikils hagnaðar og hárra bónusgreiðslna svo lengi sem veislan varir

Til að koma ofangreindu í verk þarf að skapa landslag sem gerir það að verkum að fáir fetti fingri út í vafasamar ákvarðanir.  Slíkt miðar fyrst og fremst að því að draga úr eftirliti og óþægilegum spurningum.  Helstu verkfærin eru:

  • Board of Directors – Veita stjórnum lán til kaupa bréfa í eigin fyrirtækjum – þannig eru hagsmunir þeirra orðnar beintengdar hagsmunum stjórnenda á bónustengdum launum sem miða að skammtímahagnaði og aðfinnslur á ákvörðunum ólíklegri
  • Inside Controls – Borga helstu aðilum stjórnendateymisins háar greiðslur með svipuðum hætti og áhrifum og gert er við stjórnarmeðlimi
  • External Controls – Greiða endurskoðendum veglega til að draga einnig úr þeirra gagnrýni á ársreikningum
  • Softly Softly – Vinna stöðugt í því að eiga góð samskipti við aðila sem stunda regluverk þannig að þeir taki síður föst tök á nauðsynlegum málum

Black telur að sterkir persónuleikar sem nánast drottna yfir fyrirtækjum sé sterkt viðvörunarmerki um ofangreinda stjórnunarhætti.  Í umræðum kom fram að Black gefur lítið fyrir stress test í sjálfu sér, en FME hefur verið gagnrýnt fyrir jákvætt mat á slíku rétt fyrir bankahrun.  Slík próf eru í raun gagnslaus án rökvísrar greiningar.

Hann tók fram að hann hefði ekki kynnt sér málefni Íslands til hlítar en sýnist við fyrstu sýn að munstrið varðandi stýrð fjársvik samsvari því munstri sem hann hefur áður séð annars staðar.  Helsti lærdómurinn sé að koma auga á ofangreindar upptalningar og halda þeim í skefjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar