
Nýjasti pistill Sigrúnar Davíðsdóttur úr Speglinum. Niðurlagið er svohljóðandi:
„En Flórídasagan segir okkur fleira. Einhverjir hafa kannski velt því fyrir sér af hverju stærstu leikendurnir í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár vildu allir eiga tryggingafélag. Af hverju vildu Bakkavararbræður, með Existu í takinu, eiga VÍS, auk erlendra tryggingafélaga? Af hverju sótti Jón Ásgeir Jóhannesson og Baugsveldið í Tryggingamiðstöðina – og já, Karl Wernersson og Milestone í Sjóvá? Af því það eru miklir peningar í tryggingafélögum.
Það er reyndar bannað að fjárfesta bótasjóðina svona upp á eigin býti – en það er hægt að gera ýmislegt annað, samanber Flórídaævintýrið. En þetta ævintýri er líka kafli í sagnabálkinum um hvernig nokkrir umsvifamenn hafa spilað með Ísland – hvernig þeir gátu af makalausri bíræfni og fullkomnu fyrirhyggjuleysi seilst inn í flestar fjármálastofnanir og mörg fyrirtæki landsins til að fjármagna verkefni sem oftar en ekki hafa skilað tapi og afskriftum og komið öllu á hvolf á Íslandi.“