fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Styrkirnir og borgarstjórnin

Egill Helgason
Sunnudaginn 10. maí 2009 09:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég vakti athygli á því hérna um daginn að margir helstu styrkþegarnir í röðum stjórnmálamanna kæmu úr röðum borgararstjórnarmanna og að skýringanna væri kannski að leita í því að þar hafa pólitíkusar eiginlegt úthlutunarvald.

Mörður Árnason setur fram svipaðar hugleiðingar á bloggi sínu:

Viðurkenni að ég var hissa vikuna fyrir kosningar á milljónastyrkjunum sem fólk hafi fengið, þar á meðal flokksfélagar mínir og keppinautar í prófkjörum Samfylkingarinnar, og finnst þeir eiginlega ekki siðlegir. Þetta er auðvitað búið núna og verður vonandi aldrei meir, en þessi skuggi eltir fólkið áfram í pólitíkinni, og líka flokkinn þess og aðra frambjóðendur, einsog sást hjá okkur núna.

Rétt hjá Helgu Völu: Við í Samfylkingunni þurfum að hreinsa þessi styrkjamál alveg út fyrir næstu kosningar.

Ekki síst vegna þess að næstu kosningar eru sveitarstjórnarkosningar, og það hlýtur að vekja athygli okkar í Reykjavík hvað margir af þeim sem voru í fréttum vegna styrkja koma einmitt úr borgarstjórn Reykjavíkur: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Björn Ingi Hrafnsson, Helgi Hjörvar. Er þetta tilviljun? Eða er samgangur stjórnmálamanna og peningavalds kannski nánari í sveitarstjórnum en á þinginu? Án þess að saka neinn um neitt eru sveitarstjórnirnar öðruvísi en þingið að því leyti að þar fer sama fólkið með löggjafarvald og framkvæmdarvald, og margar ákvarðanir í sveitarstjórnum snerta hagsmuni verktaka og viðskiptamanna ýmiskonar miklu beinna en atkvæðagreiðslur á alþingi. Er það tilviljun að hinir ofantöldu hafa allir komið við sögu hjá stórfyrirtækjum borgarinnar, veitum og höfn?“

Hvað er annars með þessi styrkjamál, hafa þau burtsofnað eftir kosningarnar?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum

Guðfinna skrifar: Sáttamiðlun í fasteignamálum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: VÁ!