
Þá er það komið á hreint.
Menn trúa því ekki lengur að íslenska krónan muni styrkjast að ráði.
Ekki næstu þrjú árin.
Eða það segir í spá Seðlabankans.
Evran kostar nú 168 krónur, en talið er að hún verði ekki ódýrari en 145 krónur.
Þetta eru vond tíðindi fyrir alla þá sem eru að borga af gengislánum. Haraldur Líndal Haraldsson skrifar um það í Fréttablaðið í dag.
Og þetta segir okkur líka að kjörin hérna dragast langt aftur úr nágrannalöndunum.