

Í Kiljunni í kvöld verður seinni hluti gönguferðarinnar um gamla kirkjugarðinn með Guðjóni Friðrikssyni.
Í þetta sinn skoðum við leiði persóna sem tengjast verkum Halldórs Laxness, þar ber náttúrlega hæst Sigurð Breiðfjörð – jú, og Erlend í Unuhúsi – en einnig skoðum við legstaði ýmissa höfunda sem störfuðu við upphaf tuttugustu aldar og alveg fram undir lok hennar. Þar má til dæmis nefna Guðmund Guðmundsson skólaskáld, Jón Trausta, Sigurð Nordal og Snorra Hjartarson.
Kolbrún og Páll fjalla um íslenska útgáfu á verkum Agöthu Christie og tvær klassískar barnabækur, Bangsímon og Kardimommubæinn.
En Bragi er á sínum stað í bókabúðinni.