
Hinn nýi forstjóri fjármálaeftirlistsins, Gunnar Andersen, varð þjóðþekktur á tíma Hafskipsmálsins. Hann var yfirmaður skrifstofu Hafskips í Bandaríkjunum. Hann snerist gegn Björgólfi Guðmundssyni og varð eins konar whistleblower í málinu.
Gunnar starfaði í Landsbankanum frá 1991 til 2003, síðast sem forstöðumaður alþjóða- og fjármálasviðs.
Samkvæmt heimildum mínum var hann mjög ósáttur þegar Björgólfar eignuðust bankann og sagði þá upp.
Annars er Gunnar sonur hins merka sendiherra og hafréttarsérfræðings Hans G. Andersen.