fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Fjölmiðlaeftirlitið?

Egill Helgason
Föstudaginn 3. apríl 2009 10:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlaeftirlitið?

Það er óneitanlega umhugsunarvert að á sama tíma og Fjármálaeftirlitið á fullt í fangi með að sinna rannsóknum á málum, sem tengjast hruni efnahagskerfis landsins, skuli það verja takmörkuðum starfskröftum sínum í rannsókn á því hvort blaðamenn Morgunblaðsins hafi brotið bankaleynd með fréttaflutningi sínum.Í grein Agnesar Bragadóttur í nóvember birtust upplýsingar úr lánabók Glitnis, sem m.a. sýndu fram á hvernig stjórnendur almenningshlutafélagsins Glitnis notuðu fé bankans til að hækka gengi hlutabréfa í FL Group, sem var stærsti eigandi bankans.

Í grein Þorbjörns Þórðarsonar í síðasta mánuði voru birtar upplýsingar úr lánabók Kaupþings, sem sýndu fram á hvernig það almenningshlutafélag lánaði eigendum bankans og tengdum aðilum hátt í 500 milljarða króna.

Tveir af eigendum og stjórnendum bankanna, Jón Ásgeir Jóhannesson og Sigurður Einarsson, hafa komið fram opinberlega og krafizt rannsóknar FME á því að bankaleynd hafi verið brotin með þessum hætti. Fjármálaeftirlitið hefur klárlega ekki látið sitt eftir liggja.

Ritstjórn Morgunblaðsins hefur fjallað um áðurnefnd mál og ýmis önnur, fullkomlega meðvituð um ákvæði laganna um fjármálafyrirtæki, sem kveða á um bankaleynd. Blaðið hefur hins vegar litið svo á að þessi ákvæði komi aldrei í veg fyrir að blaðamenn uppfylli þá skyldu sína að upplýsa almenning um mál, sem varða hans hagsmuni – og allra sízt við núverandi kringumstæður.

Það liggur skýrt fyrir að lánveitingar bankanna, sem stofnuðu til stórra áhættuskuldbindinga, þar með talin lán til eigenda og tengdra aðila, voru einn þeirra þátta sem felldu íslenzka bankakerfið. Þetta hefur m.a. verið staðfest skýrlega í nýrri skýrslu finnska sérfræðingsins Kaarlos Jännäri. Almenningur á að sjálfsögðu rétt á upplýsingum um það hvernig útrásarvíkingarnir umgengust almenningshlutafélögin, sem hér um ræðir.

Þessi afstaða Morgunblaðsins er studd dómafordæmum, bæði Hæstaréttar Íslands og Mannréttindadómstóls Evrópu. Blaðið og útgáfufélag þess mun standa þétt við bakið á blaðamönnum sínum og er reiðubúið að styðja þá til að fara með málið eins langt í dómskerfinu og þörf er á til að fá skorið úr um rétt almennings til upplýsinga.

Morgunblaðið og blaðamenn þess munu ekki láta hræða sig til að birta ekki upplýsingar, sem erindi eiga við almenning og alls ekki brjóta trúnað við þá heimildarmenn, sem veita því slíkar upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Of mikið samráð getur þýtt að það gerist ekki neitt

Jóhann Páll Jóhannsson: Of mikið samráð getur þýtt að það gerist ekki neitt