
Ágætur vinur síðuritara sendi þetta litla minnisblað.
— — —
Hvað tekur langan tíma að selja lagerinn (skráðar eignir á fasteignasölum) samkvæmt núverandi söluhraða? (Þetta er t.d aðal barómetirinn á þróun fasteignamarkaðarins í BNA.)
Skráðar eignir á vísi.is í dag eru 16.300* og í viku 13 eða 23. – 29. mars voru skráðir kaupsamningar á öllu landinu 33.
Það tekur sem sagt 9,5 ár að selja lagerinn af húsnæði á söluskrá með núverandi söluhraða.
Ég er með tölur frá 25/11 2005 en þá voru 5.400 eignir á skrá á mbl.is og 198 eignir seldust þá viku.
Þá var söluhraðinn sem sagt 0,52 ár.
Það er alkunn staðreynd að birgðastaða og söluverð haldast í hendur og því augljóst að hér er fasteignaverði haldi uppi af handafli og hefur það örugglega mikil áhrif á eignastöðu bankanna og þá um leið ríkisins hvort sem reiknað er í evrum eða krónum.
Hversu lengi er hægt að halda loftinu í bólunni?
Blekkingar í sjálfum grunni efnahagslífsins geta ekki haft farsælan endi, það höfum upplifað nýlega.
*Það er nokkuð um tvískráningar og ef þær eru ca 20% þá lækkar sölutíminn í 7,6 ár nú versus 0,42 ár í okt 2005.