
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, heldur því fram að fyrningarleið muni leiða til gjaldþrots sjávarútvegsins.
Samt er það svo að skuldir greinarinnar eru metnar á 500-800 milljarða króna. Sigurgeir segir að ef fyrningarleiðin verði farin muni skuldirnar leggjast á þjóðina. En um leið er mjög vafasamt að sjávarútvegurinn standi undir að borga þetta. Líklega þarf að koma til stórfelld niðurfelling skulda.
Máli sínu til stuðnings vísar Sigurgeir í skýrslu frá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte frá árinu 2003
Deloitte hefur einmitt unnið mikið fyrir útgerðarfélög, eiginlega sérhæft sig í þeim.
Og nú vill svo til að einn eigandi Deloitte, Lárus Finnbogason, er einnig formaður skilanefndar Landsbankans.
Þar sem er mikið af skuldum útgerðarinnar.