fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Í reiptogi yfir gjá, pistill Sigrúnar

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. apríl 2009 21:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Davíðsdóttir fjallaði í pistli í Speglinum um skýrslu finnska sérfræðingsins Kaarlo Jännäri um íslenska fjármálakerfið. Hún dregur saman þessi efnisatriði úr þeim.

— — —

Skýrsla Kaarlo Jännäri er spennusaga á borð við Íslendingasögurnar þar sem harmrænn endir liggur í loftinu allan tíman – og lesandinn les með öndina í hálsinum af þeirri fyrirsjáanlegu skelfingu sem ekki verður forðað.

Forstöðumenn bankanna þriggja, Glitnis, Landsbanka og Kaupþings, hafa gjarnan haldið því fram að bankarnir hafi starfað eins og helstu bankar erlendis. Skýrsla Jännäri sýnir klárlega að það er nokkuð ofsagt. Það er ýmislegt sem kemur finnska sérfræðingnum á óvart, einmitt af því bankarnir störfuðu ekki eins og búast mætti við af viðurkenndum fjármálastofnunum. Hugum að því sem Jännäri hnýtur einkum um.

Jännäri bendir á að almennt megi segja að bankarnir og viðskiptaheimurinn íslenski hafi hneigst til að fylgja lagabókstafnum fremur en anda laganna. Ötullega studdir lögfræðingum og öðrum ráðgjöfum hafi þeir komið upp flóknu kerfi og vef eignarhaldsfélaga til að komast hjá ýmsum lagalegum hindrunum. – Þetta er hin almenna lýsing á hvernig bankarnir störfuðu. Lítum nú á einstök atriði.

Þegar leið á vorið 2008 gullu við viðvaranir alls staðar að varðandi ástandið á Íslandi – það var ekki til sú stofnun sem varaði ekki við: Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, Evrópski seðlabankinn, einstakir seðlabankar og ýmsir viðskiptabankar – enda voru allar fjáruppsprettur að lokast Íslendingum. Lengst hörkuðu bankarnir á evrópskum miðum. Í gegnum seðlabankann í Lúxemborg gátu þeir komið rananum í sjóði evrópska seðlabankans. Þeir buðu upp á skuldabréf hver í öðrum. Það segir sína sögu að þessi bréf kallast ‘ástarbréf’. Evrópski seðlabankinn og Lúx-bankinn fengu á endanum nóg af og sömdu við íslenska seðlabankann og bankana þrjá um að takmarka ástarbréfin.

Þrátt fyrir samkomulagið brutu tveir íslensku bankanna þessar takmarkanir í haust, væntanlega í örvæntingu. Jännäri segir ekki hvaða tveir bankar þetta voru. Það er ákveðin vísbending að Landsbankinn í Lúxemborg var tekinn til gjaldþrotaskipta stuttu eftir hrunið og að nefnt hafði verið að breyttar reglur evrópska seðlabankans bitnuðu á Glitni. Í september voru svo bankarnir, seðlabankinn og sjálft lýðveldið Ísland rúið lánstrausti, segir Jännäri – í einu orði sagt hrikaleg staða.

Áðurnefnd tilhneyging bankanna til að smeygja sér framhjá lagahindrunum kom einnig fram í álagsprófunum margumræddu. Að mati Jännäri upplýstu bankarnir til dæmis fjármögnun sína sem örugga þó svo væri öldungis ekki. Að minnsta kosti einn bankinn, ekki nefndur á nafn, gæti hafa misskilið viljandi hvaða upplýsingar átti að gefa upp í álagsprófið svo niðurstöðurnar urðu villandi.

En bankarnir gerðu fleira en að smeygja sér hjá og villa um fyrir eftirlitsaðilum. Jännäri bendir á ‘óvarlega hegðun’ – já, orðin eru feitletruð. Hegðun sem jók mjög á rekstraráhættu bankanna: krosseignatengsl annars vegar, hins vegar lán til tengdra aðila.

Krosseignatengsl höfðu verið viðloðandi vandamál í augum útlendinga, samanber erlendu gagnrýnina 2006. Beinu tengslin voru að einhverju leyti leyst upp – en eftir sem áður viðgengust lúmsk tengsl. Bankarnir fjármögnuðu glaðbeittir kaup eigenda sinna og stærstu viðskiptavina á hlutabréfum viðkomandi banka og hlutabréfum hinna bankanna. Þetta jók gríðarlega áhættu þeirra – þrátt fyrir allt tal um áhættudreifingu með erlendri starfsemi sinni bundu þeir þarna mikla fjármuni við íslenskar aðstæður og aðstæður hvers annars.

Það er kannski léttúðg túlkun en þetta var næstum eins og fóstbræðralag – einn fyrir alla og allir fyrir einn. Enda varð sú raunin. Jännäri segir að þegar 75 prósenta hlutur í Glitni var tekinn yfir var það bylmingshögg, ef ekki náðarhögg á Landsbankann. Og af hverju? Af því Landsbankinn hafði lánað einum af stærstu eigendum Glitnis – engin nöfn nefnd – ógnar upphæðir, gegn hlutabréfum hans í Glitni. Bara þetta gerði, segir í skýrslunni, stöðu Landsbankans óverjandi að Glitni föllnum. Það er með ólíkindum að lána aðeins einum aðila svo mikið að það stefni bankanum í tvísýnu.

Lán til tengdra aðila var annar tröllaukinn áhættuþáttur í bönkunum. Jännäri bendir á að íslenskar reglur um þessi atriði séu hliðstæðar evrópskum reglum. Bankahefðin íslenska hafi hins vegar verið vanþroska. Bankarnir hugleiddu ekki að reglur um þessi atriði eru ekki út í bláinn heldur þeim til varnar. Þess í stað reyndu þeir, með orðum Jännäri, eins og þeir gátu að smeygja sér hjá reglunum ef þeir töldu það þeim sjálfum eða eigendum sínum í hag. Jännäri bendir svo á að það sé mjög óvanalegt fyrir svona stóra banka að hafa lánað tengdum aðilum jafn mikið og raun ber vitni. Og til að bæta gráu ofan á svart voru svo sömu einstaklingarnir með stór lán í fleiri en einum banka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki