
Sjálfstæðismenn leggja mikið upp úr því að ný kynslóð hafi tekið við flokknum.
Þess er þó að gæta að þetta er kynslóðin sem hefur ráðið ferðinni í þjóðfélaginu síðustu árin, á tíma ólígarkanna, í bönkunum og fjármálafyrirtækjunum. Útrásarkynslóðin sem ruddi burt mörgu eldra og reyndara fólki.
Af þessari kynslóð eru til dæmis Jón Ásgeir Jóhannesson, Hannes Smárason, Hreiðar Már Sigurðsson og Björgólfur Thor Björgólfsson.
Þannig að það er ekki eins og hún hafi verið alveg áhrifalaus.
Samfylkingin teflir fram 67 ára konu, aldursforseta þingsins. Hún hefur verið þar síðan 1978. Vinstri græn Steingrími J. sem er 54 ára og hefur verið á þingi síðan 1983.
Það mátti alveg búast við því að ný kynslóð tæki við í stjórnmálaflokkunum. Eiginlega er hinn snöggi frami Jóhönnu og Steingríms miklu óvæntari.
Það héldu allir að þau væru á leiðinni út.