
Jóhanna fær 97 prósent í formannskjöri Samfylkingarinnar.
Fyrir fáum misserum var Samfylkingin í óða önn að skrifa hana út úr handritinu.
Hún átti að hverfa úr ráðherrastóli, verða þingforseti að líkindum, svo hætta.
Fáum í flokknum fannst þetta vera annað en þjóðráð. Á tíma útrásarinnar þótti Jóhanna frekar púkaleg.
En svona hafa tímarnir breyst snögglega. Nú er það hún sem á að draga vagn Samfylkingarinnar – með marga farþega sem eru búnir að koma sér þægilega fyrir innanborðs.