
Sigurður Einarson er ótrúlegur maður. Nú er hann að kvarta undan því að trúnaðargögnum hafi verið lekið út úr Kaupþingi.
Hingað til hefur hann mótmælt öllu og sagt það ósatt.
En fyrst hann segir að þetta sé byggt á trúnaðargögnum sem hann telur að leynd eigi að ríkja um – ja, þá hlýtur það að jafngilda staðfestingu hans á að þetta sé allt satt og rétt.
Þetta sem hefur verið í fréttum um óstjórnlega háu lánin til eigenda og vildarvina bankans, manna eins og Ólafs Ólafssonar, Roberts Tschenguiz og Lýðs og Ágúst Guðmundssona.
Og það sem hefur birst um sérkennilega fyrirgreiðslu til Björns Inga Hrafnssonar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Kristján Arason og Lúðvík Bergvinsson.
Sigurður staðfestir semsagt að þetta sé allt sannleikanum samkvæmt.
Í hans augum er glæpurinn bara að upplýsingarnar skuli hafa lekið út.