
Íslandsvinurinn Willem Buiter – eiginmaður Anne Sibert sem situr í nýrri peningastefnunefnd Seðlabankans, þau voru saman gestir í Silfrinu fyrir nokkru – skrifar merkilega grein á vefinn Vox og fjallar um nauðsyn þess að setja strangar reglur um fjármálamarkaði, segir að nú sé tækifæri til.
Hann leggur áherslu á gagnsæi, segir brýnt að koma upp sam-evrópsku eftirlitskerfi og talar um þörfina á að loka skattaparadísum.
Eva Joly talaði um þetta allt á fundi í Háskólanum í Reykjavík í gær. Hún hefur meðal annars verið í samvinnu við bandaríska öldungadeildarþingmenn sem eru nátengdir Obama forseta.
Kannski er tækifærið núna?