
Hver samfylkingarmaðurinn á fætur öðrum skrifar mærðarfullar greinar um formanninn fráfarandi, Ingibjörgu Sólrúnu.
Samt er það svo að hún var orðin dragbítur á flokknum.
Það er líklegt að honum vegni betur í kosningum án hennar en með hana í forystu. Það vita flokkmenn. Og þeir sakna henner varla meira en sjálfstæðismenn sakna Geirs Haarde.
Skoðanakannanir undanfarið hafa sýnt að Ingibjörg Sólrún nýtur lítils traust.
Staðan nú virðist vera sú að annað hvort verði Jóhanna klöppuð upp sem formaður eða Dagur Eggertsson dubbaður upp í það hlutverk.
Það er ólíklegt að verði slagur um formannsembættið.
En pólitískur ferill Ingibjargar Sólrúnar var kominn að endalokum – alveg burtséð frá veikindunum. Rétt eins og ferill Geirs Haarde – sem vissulega ber miklu meiri ábygð á óförunum en hún.
En húnvar annar leiðtogi aðgerðaleysisstjórnarinnar sem var reyndist vera vanhæf bæði fyrir og eftir hrun. Gerði ekkert til að bregðast við váboðum sem blöstu við – var svo líkt og slegin lamandi doða.
Hún hafði misst bæði kjörþokkann og leiðtogaáruna. Og hugmyndafræðilega var flokkurinn búinn að sigla í þrot með sin blairisma.
Ekki bætir heldur úr skák að tími hennar Ingbjrgar Sólrúnar utanríkisráðuneytinu var hálf misheppnaður.
Þar barðist hún fyrir kjöri Íslands í Öryggisráðið, hún stóð fyrir stofnun Varnarmálastofnunar sem líklega verður lögð niður líkt og hið algjörlega óþarfa loftrýmiseftirlit. Verkefni sem átti að fara í og tengdust þróunarhjálp voru líka lögð niður. Sum þeirra voru einhvers konar auglýsingamennska fyrir öryggisráðsframboðið, önnur verða einfaldlega aflögð vegna þess að við tímum ekki peningunum lengur.
Svo er önnur spurning hvernig fer með Samfylkinguna undir nýjum formanni. Jóhanna eða Dagur gætu skapað visst trúnaðartraust.
Og þá gæti gleymst að endurnýjunin hjá Samfylkingunni felst aðallega í atvinnulausum fjölmiðlastjörnum – en annars raðar gamla liðið sér aftur í efstu sætin á framboðslistum, talar um að það hafi axlað ábyrgð og segist jafnvel hafa fengið endurnýjað umboð þótt í raun hafi það fengið lélega kosningu.