
DV er með ágætis úttekt í dag á Enron-Íslandi.
Meðal annars er vitnað í viðskiptamann af gamla skólanum, Davíð Scheving Thorsteinsson.
Hann segir:
„Þessi viðskiptavild var bara bull eins og hefur komið í ljós núna. Þetta var svindl. Það var var bara verið að stela peningum. Sum fyrirtæki voru bara gjaldþrota ef viðskiptavildin var tekin burt. Skuldastaðan var meira en 100 prósent,“ segir Davíð Scheving Thorsteinsson.
Hann segist ekki sjá neinn mun á bókhaldssvikum Enron og því sem tíðkaðist hér á síðustu árum. „Enron menn voru að stela undir dulnefni. Hér voru notuð önnur orð yfir það sem var verið að dylja til að stela. Hér var sagt að reksturinn skipti engu máli. Það eina sem skiptir máli voru væntingarnar.“
Meðal félaga sem þetta á við um er eignarhaldsfélagið Exista. Með furðulegum blekkingum – eins og voru alsiða hér á hlutabréfamarkaðnum – tókst að koma gengi félagsins upp í 40. Þegar það síðan var keypt af Bakkabræðrum, aðaleigendum sínu, var hluturinn kominn niður í 2 aura, eins og sjá má í þessum pistli sem nefnist Merkilegir viðskiptahættir.
Ég bendi líka á þennan pistil um eignir og eigið fé Exista sem sýnir hvílíkt rugl menn voru komnir í þegar viðskiptavild var metin.