
Ari Matthíasson sendi þennan pistil:
Við lestur á því ágæta blaði MEMORIAL, Journal Officiel Amtsblatt du
Grand-Duché de Luxembourg sem allir skárri viðskiptamenn hérlendir líta í
á undan Morgunblaðinu, má finna upplýsingar sem gefa til kynna að mikill
sé sá misskilningur hérlendra að einhver útrás hafi verið í gangi í
viðskiptum. Þetta ágæta lögbirtingablað sýnir svo um verður ekki villst að
menn úr Karabíska hafinu hafa verið stórtækir í viðskiptum og fengið
innlenda smákarla til að leppa fyrir sig uppkaup á íslenskum fyrirtækjum.
Þannig er mikill misskilningur að Bjöggarnir hafi átt stóran hlut í
Straumi undir nafni Topaz Equities. Þetta má lesa í blaðinu góða því hinn
7. júlí á því herrans ári 2006 voru mættir fulltrúar þessa merka
fyrirtækis sem skráð var á Akara BIdg., 24 De Castro Street, Wickhams Cay
I, Road Town, Tortola, Jómfrúareyjum. Þar fór fremstur í flokki enginn
annar en Habiba Boughaba, lögmaður, sem búsettur er í Hertogadæminu af
Lúxembúrg. Hr. Boughaba var sem sagt mættur til þess að flytja fyrirtækið
til Lúx með öllu því sem fylgir og fylgja ber, s.s. skráðu eiginfé uppá
25.000 evrur. Þetta ágæta félag átti þá þegar 4,2% í Straumi-Burðarás og
hafði Bjöggana til þess að mæta á fundi fyrir sig og greiða atkvæði. Það
dettur engum heilvita manni í hug að svona öflugt fyrirtæki frá Tortúlu sé
að standa í einhverjum monkí-business og feluleik. Það er alla vega fyrir
neðan virðingu Habiba Boughaba, lögmanns að taka þátt í slíku.