
Óvenju rífleg stýrivaxtahækkun upp í fimmtán prósent sýnir hversu íslenskt efnahagslíf er farið úr böndunum. Nú er að sjá hver áhrifin verða. Tilgangurinn hlýtur að vera að styrkja krónuna. Hún hefur eflst aðeins í morgun, þó ekki enn nema um svona tvö prósent.
Eða kannski prísa menn sig sæla ef vaxtahækkunin gerir þó ekki annað en að koma í veg fyrir frekara fall krónunnar.
En ef gengið ekki lækkar mun vaxtahækkun frekar virka sem olía á verðbólgubálið.