fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Seðlabankinn, einelti pólitíkusa í marga áratugi

Egill Helgason
Fimmtudaginn 5. mars 2009 08:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef við lifðum ennþá í íslenska spillingar-, klíku- og flokksgæðingaskipulaginu, þá væru Geir H. Haarde, Valgerður Sverrisdóttir eða Össur Skarphéðinsson sennilega á leið í Seðlabankann.

Hugsanlega erum við nú á leiðinni út úr þessum tíma.

Ef fórnarkostnaðurinn er sá að hafa Norðmann sem seðlabankastjóra um stundarsakir – ja, þá er það hið besta mál.

Jón Sigurðsson talar um að Seðlabankinn hafi mátt sæta pólitísku einelti. En ef skoðaður er listinn hér fyrir neðan má sjá að eineltið hefur staðið í marga áratugi.

Þetta er listi yfir seðlabankastjórana frá upphafi, bankinn var ekki stofnaður fyrr en 1961. Áður var hann bara skúffa.

Jóhannes Nordal 1961-1993

Jón G. Maríasson 1961-1967

Vilhjálmur Þór 1961-1964 (fyrrverandi forstjóri SÍS, ráðherra í utanþingsstjórninni 1943-44)

Sigtryggur Klemensson 1966-1971

Davíð Ólafsson 1967-1986 (fyrrverandi alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn)

Svanbjörn Frímannsson 1971-1973 (SÍS-maður, fulltrúi Framsóknar)

Guðmundur Hjartarson 1974-1984 (eini seðlabankastjórinn sem kommarnir eignuðust!)

Tómas Árnason 1985-1993 (fyrrverandi þingmaður og ráðherra fyrir Framsókn)

Geir Hallgrímsson 1986-1990 (fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra)

Birgir Ísleifur Gunnarsson 1991-2005 (fyrrverandi borgarstjóri, þingmaður Sjálfstæðisflokks og ráðherra)

Jón Sigurðsson 1993-1994 (fyrrverandi þingmaður Alþýðuflokksins og ráðherra)

Steingrímur Hermannsson 1994-1998 (fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra)

Finnur Ingólfsson 2000-2002 (fyrrverandi ráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins)

Jón Sigurðsson: 2003-2006 (tók „framsóknarstöðuna“ innan bankans, síðar formaður flokksins og ráðherra)

Davíð Oddsson: 2005-2009 (fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra)

Eiríkur Guðnason: 1994-2009

Ingimundur Friðriksson: 2006-2009

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi