
Gísli Marteinn Baldursson skrifar athyglisverðan pistil um REI málið á heimasíðu sína. Hann endar með svofelldum orðum:
„Við þetta má bæta að það er mjög athyglisvert að fylgjast með því hvernig höfuðpaurar REI málsins sem véluðu um það frá upphafi, hafa æ síðan staðið saman í opinberri umræðu þegar óþægilegar fréttir hafa borist um það hvernig vélað var um málið. Þá er hlægilegt að sjá Össur greyið halda áfram að hampa orkuútrásarvini sínum Birni Inga á blogginu sínu. Það er sameiginlegt hagsmunamál allra þessara aðila að sannleikurinn komi ekki fram. En sem betur fer hafa ekki allir hagsmuni af samsæri þagnarinnar í þessu máli og við sem stóðum í fárinu miðju og höfuðpaurarnir gerðu að blórabögglum, fáum sífellt meiri upplýsingar um óhreinindin í málinu. Sú saga hefur ekki enn verið sögð.“