
Jón Þórisson sendir þetta bréf:
— — —
Í viðtali við Telmu Tómasdóttur í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, lýsir Ástralski auðmaðurinn Steve Cosser því að hann hafi áhuga á að fjárfesta á Íslandi fyrir verulegar fjárhæðir í virkjunum, orkufyrirtækjum, fasteignum og ferðaþjónustu.
Fréttamaður segir:“Cosser hefur meðal annars gert tilboð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins og vonast eftir jákvæðri niðurstöðu. Hann aftekur með öllu að hann sé leppur fyrir Íslenska auðmenn í þeirri fjárfestingu“.Cossner: „Satt best að segja þekki ég enga slíka. Ég hef heyrt þennan andstyggilega orðróm. Brátt komumst við að því hver ber ábyrgð á honum og þá verður gripið til viðeigandi ráðstafana gegn þeim einstaklingi eða einstaklingum. Þetta er algjör þvættingur“.
Á ensku er svar Cossers svona:
„I don´t know any is the honest answer. I have heard this rumor relentlessly. We are getting pretty close to finding the source of these completely unfounded and malicious rumors and once that is confirmed, the necessary steps will be taken to deal with the individual or individuals concerned, but it is completely and utterly without foundation.“
Hvað er maðurinn að fara, er hann að láta rannsaka almannaróm?
Hvað eru viðeigandi ráðstafanir gegn þrálátum orðrómi að mati Cossers?
Hvað eru „necessary steps“ sem verða tekin gegn einum eða fleiri einstaklingum?
Hvað er maðurinn að fara?
Er hann að hóta okkur?
Er þetta maðurinn sem ætlar að fara að reka stræsta fjölmiðil landsins.
Steve Cosser! Ég heiti Jón Þórisson, þú getur flett mér upp í símaskránni ef þú átt eitthvað vantalað við mig!
Það sem ég vil fá að vita um þig, áður en þú kaupir ættargripina okkar á útsölu, er hvaðan peningarnir þínir koma!!