
Það hefði fyrir löngu þurft að ráðast gegn verslunareinokuninni hér. Sjálfur Jóhannes í Bónus sagði eitt sinn að óæskilegt væri að matvöruverslanakeðja hefði meira en 10 prósenta markaðshlutdeild.
Við höfum búið við ónýtt samkeppniseftirlit og stjórnmálamenn sem ekki hafa þorað að leggja til atlögu við verslunarrisana.
Þess vegna sæta þessi orð Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra miklum tíðindum.
„Við höfum um margt búið við mjög óeðlilega skipan mála hvað samkeppni í verslun og fleiri greinum varðar á síðustu árum. Í mörgum tilfellum hafa mjög mörg fyrirtæki eða verslunarkeðjur starfað undir hatti fárra eignarhaldsfélaga, sem nú standa mörg hver mjög illa,“ sagði Gylfi við umræður utan dagskrár um stöðu verslunarinnar, en málshefjandi var Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„Ég tel að þetta skapi ákveðin sóknarfæri í samkeppnismálum,“ sagði viðskiptaráðherra, „þannig að þegar kemur að því að greiða úr málum þessara eignarhaldsfélaga, þá verði þau ekki endurreist í fyrri mynd, heldur frekar seld í smærri einingum, sem vonandi eru þá rekstrarhæfar. Upp rísi verslunar sem verði með fleiri og smærri fyrirtækjum og þar af leiðandi meira svigrúm fyrir samkeppni. Það held ég að verði neytendum til góða og auk þess sé það sennilega besta leiðin fyrir kröfuhafana til þess að koma þessum eignum í verð, enda sennilega erfitt að fá kaupendur að einhverjum mjör stórum einingum um þessar mundir.„