
Því var hvíslað að mér, sem pólitískum möguleika, að Framsókn kynni að fella ríkisstjórnina þegar í mars.
Ég trúði því ekki þá, en þetta er umhugsunarefni núna.
Annars stefnir í enn einar kosningar á Íslandi þar sem niðurstaðan gæti orðið sú að Framsóknarflokkurinn ráði hverjir stjórna landinu.
Gangi óbundinn til kosninga og verði í oddastöðu eftir þær.
Það er líka umhugsunarefni.