fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Afgreiðsla Höfðaleigusamningsins í borgarráði

Egill Helgason
Mánudaginn 23. febrúar 2009 22:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

8.3.2007 – – Fundur nr. 4973 – Borgarráð

B O R G A R R Á Ð

Ár 2007, fimmtudaginn 8. mars, var haldinn 4973. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09.40. Viðstaddir voru: Árni Þór Sigurðsson, Björk Vilhelmsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sif Sigfúsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Jafnframt sat fundinn Margrét Sverrisdóttir.
Fundarritari var Gunnar Eydal.

4. Lagt fram að nýju bréf borgarstjóra frá 27. f.m. varðandi leigu á skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 10-12 fyrir framkvæmdasvið, skipulags- og byggingarsvið, umhverfissvið o.fl., sem og sölu á fasteignunum að Borgartúni 1, Borgartúni 3, Skúlatúni 2 og Hverfisgötu 14-14a. Jafnframt lögð fram að nýju greinargerð sviðsstjóra framkvæmdasviðs, dags. 26. f.m., og drög að leigusamningi og kaupsamningi við Höfðatorg ehf., ódags.
Borgarráð samþykkir samninginn með 4 samhljóða atkvæðum. R07020171

Borgarráðsfulltrúar Vinstri grænna og F-lista óska bókað:

Við teljum að eðlilegra hefði verið að leita tilboða í langtímaleigusamning vegna húsnæðis sviðanna þriggja. Jafnframt hefði þurft að bera saman kosti við leigu annars vegar og hins vegar að borgin ætti húsnæðið sjálf. Vinnubrögðin við undirbúning málsins vekja tortryggni.

15. Lagt fram svar borgarstjóra, dags. í dag, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingar um byggingu Borgarhúss, sbr. 20. lið fundargerðar borgarráðs frá 1. mars sl. R07020171

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar óska bókað:

Það svar sem hér liggur fyrir er alger útúrsnúningur á staðreyndum málsins. Því er t.d. ekki svarað með beinum hætti hver tók þá ákvörðun að ræða beint við Eykt, en draga má þá ályktun að það hafi verið borgarstjóri. Málið kom aldrei til kynningar í borgarráði og í október á sl. ári spurðu fulltrúar Samfylkingar í framkvæmdaráði um málið, en fátt varð um svör. Þá höfðu fulltrúar Samfylkingarinnar haft af því spurnir að byrjað væri að ræða við Eykt án þess að málið hefði verið kynnt borgarráði. Af fyrri meirihluta var unnið í málinu fyrir opnum tjöldum og borgarráði haldið upplýstu allan tímann. Sú ákvörðun á þeim tíma að fara í viðræður um byggingu Borgarhúss við Lækjargötu, byggði á því mati að með því sýndu borgaryfirvöld gott fordæmi með styrkingu miðborgarinnar og flutningi stofnana þangað. Ef nýr meirihluti er ekki sammála því að borgaryfirvöld eigi að ganga á undan með góðu fordæmi og styrkja miðborgina, hefði átt að kynna þá ákvörðun. Ef Lækjargata 12, var ekki talin henta hefði verið eðlilegt að bjóða verkið út. Hér er samið beint um 4 milljarða á 25 árum og eignir borgarinnar seldar án þess að kannað sé hvað markaðurinn er tilbúinn til að greiða. Athygli er vakin á því að þær eignir sem seldar eru standa á lóðum þar sem skipulag gerir ráð fyrir meira byggingamagni. Engin tilraun er gerð til að meta þann byggingarrétt til hækkunar á verði. Meðan unnið er að málum með þessum hætti og kjörnir fulltrúar leyndir upplýsingum er ekki hægt að ætlast til þess að samstaða náist. Vinnubrögðin í þessu máli staðfesta enn og aftur óvönduð vinnubrögð þar sem samið er við einn aðila án útboðs. Með því eru hagsmunir borgarbúa ekki hafðir að leiðarljósi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi