
Helga Vala kvartar undan því að talað sé um að finna verðugan fulltrúa Hafnfirðinga á framboðslista Samfylkingarinnar.
Gunnar Svavarsson er að hætta. Hann fann sig ekki á þingi, fékk heldur ekki að vera með í innstu klíkunum í flokknum.
En sagan er reyndar sú að Gunnar verði gerður að bæjarstjóra í Hafnarfirði, en þar hefur hann verið forseti bæjarstjórnar.
Lúðvík Geirsson muni svo tilkynna um framboð sitt til þings og sækjast eftir fyrsta sæti listans.
Þannig muni þeir félagarnir einfaldlega hafa stólaskipti.
Krötunum í Hafnarfirði finnst sjálfsagt að þeir eigi mann á þingi. Gunnar tók við af Guðmundi Árna Stefánssyni þegar hann fór í sendiherrann. Og áður voru þarna Kjartan Jóhannsson og Emil Jónsson.
Þó má setja spurningamerki við hvort Lúðvík sé alvöru hafnarfjarðarkrati. Pabbi hans var þingmaður Alþýðubandalagsins í kjördæminu og Lúðvík sleit barnsskónum í þeim flokki og svo á Þjóðviljanum þar sem hann var blaðamaður.