
Þessi grein í Daily Telegraph er svosem ekki annað en staðfesting á því sem vitað hefur verið.
Það var búið að loka á Baug í útlendum fjármálastofnunnum árið 2007.
Eftir það var kom fjármögnunin frá Íslandi, með furðulega greiðum útlánum úr bönkum, í gegnum peningamarkaðssjóði og Icesave.
En fyrir manni rifjast upp grein eftir Jón Ásgeir frá því fyrir skemmstu þar sem hann talaði um Ebitda Baugsfyrirtækja og ágæta stöðu þeirra.
Og svo ummælin þegar hann nefndi það „pungspark“ að Landsbankinn vildi ekki lána honum meiri peninga.