
Hér er grein úr Observer þar sem því er haldið fram að konur séu að bjarga Íslandi út úr kreppunni.
Það er meðal annars talað við stöllurnar í Auði Capital – önnur þeirra var til skamms tíma framkvæmdastjóri Verslunarráðs en hin var lykilstjórnandi í Kaupþingi – og svo er talað við kvenkyns yfirmenn hjá Högum og Milestone!
Það eru aldeilis fyrirtæki hins nýja tíma á Íslandi!
Þvínæst er nefnt að bankastjórar Landsbanka og Glitnis séu konur, en reyndar á leiðinni út.
Maður spyr bara: Hver fóðraði Ruth Sunderland, blaðamann Observer, á þessum spuna?
Jú, reyndar er talað um Jóhönnu Sigurðardóttur.
En maður fær ekki séð að heilög Jóhanna eigi neitt sameiginlegt með ofannefndum konum – annað en kynferðið.