fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Vilhjálmur og endurreisnin

Egill Helgason
Sunnudaginn 22. febrúar 2009 15:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sett á stofn svokallaða Endurreisnarnefnd sem á að skila skýrslu fyrir landsfund flokksins í mars.

Allt gott um það. Flokkurinn hlýtur að þurfa að endurskoða stefnu sína í ljósi efnahagshrunsins.

Spurning er í hvaða átt verður stefnt – hvort til dæmis sósíaldemókratískar áherslur verði fyrirferðarmeiri en áður. Allavega býst maður ekki við sterkum einkavæðingarboðskap. Og svo er auðvitað spurning um Evrópumálin.

Það vekur nokkra athygli að það er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem stjórnar starfi nefndarinnar.

Samtök atvinnulífsins hafa verið sérstaklega nátengd stóru fyrirtækjasamsteypunum og eignarhaldsfélögunum sem eiga hugsanlega mestan þátt í hruninu–  eins og glöggt má sjá þegar skoðað er hvernig stjórn samtakanna er skipuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi