
Nú hefur sama bragðinu tvívegis verið beitt á Guðlaug Þór Þórðarson.
Mótherjar hans innan flokksins gera skoðanakönnun sem síðan er komið í fjölmiðlana á hentugum tíma.
Fyrst var það könnun sem birtist á vefnum Heimi og sýndi að Bjarni Benediktsson naut meira fylgis í formannskjöri en Guðlaugur.
Og nú er það Capacent könnun, gerð fyrir Illuga Gunnarsson að því er virðist, sem sýnir að nefndur Illugi nýtur meira fylgis í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en Guðlaugur.
Illugi og Bjarni eru í sama pólitíska genginu. Ef Bjarni nær formannssætinu og Illugi verður foringinn í Reykjavík má segja að þeir hafi náð flokknum á sitt vald.