
Nú er ljóst að almenningshlutafélag Vilhjálms Bjarnasonar, Boga Emilssonar og fleiri fær ekki að kaupa Morgunblaðið.
Kannski var þetta aðeins of draumórakennt.
En þegar maður horfir á hópana tvo sem eru eftir í tilboðsferlinu hlýtur maður að velta fyrir sér framtíð blaðsins.
Annar samanstendur af grjóthörðum sjálfstæðismönnum sem maður ímyndar sér trauðla að vilji kaupa blað án þess að hafa mikil áhrif á hvað er skrifað í það.
Hinn aðilinn er dularfullur ástralíumaður sem nefnist Steve Cosser. Á vefnum Amx er fjallað um tengsl hans við gamla Kaupþing.
Eins og ég hef sagt hefur að sumu leyti verið gósentíð á Mogganum meðan eignarhaldið hangir í lausu lofti. Enginn fjölmiðill hefur til dæmis verið jafn duglegur að fjalla um tengsl íslenskra fjármálamanna við dularfullar eyjar í Karíbahafi.