
Hér er að finna merkilegar pallborðsumræður þar sem er meðal gesta Nassim Taleb. Hann er heimsfrægur fyrir að hafa séð kreppuna fyrir.
Taleb er ekki að skafa utan af hlutunum.
Hann telur nauðsynlegt að reka þá sem komu hagkerfinu í þrot.
Að þjóðnýta bankana – í stað þess að halda áfram að dæla í þá fé.
Og umbylta námsefninu í viðskiptaháskólunum.