fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Stórmerkileg baráttukona gegn fjármálaspillingu

Egill Helgason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2009 23:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

eva-joly-1jpcf59-f8cfe.jpg

Í lítilli grein sem ég skrifaði í desember lagði ég til að norsk/franski saksóknarinn Eva Joly yrði fengin til að ráðleggja okkur um rannsókn bankahrunsins.

Joly varð fræg í Frakklandi – og eiginlega heimsfræg – þegar hún rannsakaði eitt stærsta fjármálahneyksli franskrar sögu, mál sem var kennt við olíufélagið Elf.

Annars er hún fædd og uppalin í Noregi, flutti sem ung kona til Frakklands og giftist þar.

Í kvöld var mynd í norska sjónvarpinu um Evu Joly.

Þetta er stórmerk kona. Hún ferðast um heiminn og leggur stjórnvöldum lið í baráttunni við fjármálaspillingu.

Í myndinni var hún meðal annars stödd í Malí.

Þar sagði hún við misrétti og ójöfuði yrði ekki útrýmt, en nauðsynlegt væri að reyna að loka stöðunum þar sem hinir ofurríku, þeir sam hafa lagt undir sig auð jarðarinnar, geyma fé sitt.

Joly sagði að Elf málið hefði verið  geysilega erfitt verkefni, en samt hefði hún náð betri árangri en hún bjóst við. Málið hefði endað með því að þrjátíu menn fengu dóma.

En eins og hún sagði í myndinni:

„Dómskerfið er ekki hannað til að dæma forstjóra. Það er hannað til að dæma töskuþjófa.“

Fyrr í vetur póstaði einhver hér inn þessu broti úr ævisögu Evu Joly:

One day I paid a visit to the Norwegian police academy. We watched a practice operation. In a mocked-up stage set, the students learned how to search a drug dealer‘s flat: the had to make a surprise entrance and to rush towards the toilet door to stop the trafficker flushing away his stock of cocaine. But no test had been envisaged to catch the banker laundering money in his office. Customs inspectors have dogs to detect cocain, but they are of no use where numbered bank accounts are concerned. Such an exercise would require an entirely dfferent stage set… As the Spanish judge Baltasar Garzón joked, nobody bothers holding up a bank any more: they just buy it. When crime is at the top, everthing gets complicated“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins