fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Póstur frá 6. ágúst

Egill Helgason
Þriðjudaginn 17. febrúar 2009 17:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fann þetta bréf þegar ég var að hreinsa til í tölvunni áðan. 6. ágúst í sumar sendi hagfræðimenntaður vinur minn þennan póst sem mátti meðal annars lesa eftirfarandi. Ég man að mér þótti lesturinn hrikalegur. Þegar maður les þetta núna sér maður hvað stjórnvöld og ráðgjafar þeirra flutu sofandi að feigðarósi.

— — —

Mér þykir sýnt að í haust/vetur sjáum við eftirfarandi gerast:

1.    Meira en helmings fækkun starfsmanna í byggingariðnaði og fasteignasölu.
2.    Skarpasta samdrátt í einkaneyslu frá stríðslokum (töluvert meiri en eftir að síldin hvarf).
3.    Mestu gjaldþrotahrinu Íslandssögunnar.
4.    Mesta atvinnuleysi frá því í kreppunni miklu (það verður þó ekki endilega komið fram í vetur).
5.    Hrun á fasteignamarkaði m.a. í atvinnuhúsnæði (við munum í fyrsta sinn í mörg ár sjá húsnæði standa autt og hálfklárað árum saman).
6.    Hætt verður við fjölmörg fasteignaverkefni. Aðeins verða kláraðar 2 af stórbyggingunum við Höfðatorg. Verslunarmiðstöð og turnar Samson í miðbænum verða ekki byggð. Nýju turnarnar 101 Skugga munu standa auðir lengi eða verða breytt í leiguíbúðir. Sú uppbygging verður ekki kláruð á næstu árum. osfrv.
7.    Miklu meira hrun á hlutabréfamarkaði en þegar hefur komið fram. Exista verður ekki til í núverandi mynd og Kaupþing getur auðveldlega lækkað um helming í viðbót og við vissar aðstæður gætu íslensku bankarnir hæglega orðið gjaldþrota. Líklegra er þó að áður en að því kæmi mundu erlendir bankar yfirtaka þá. Það eru t.d. líkleg örlög Kaupþings við þrot Existu.

Ekki hægt að koma í veg fyrir kreppu úr því sem komið er. Það sem ég óttast hins vegar er að aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnvalda muni á endanum gera kreppuna meira langvarandi og jafnvel dýpri en ella í stað þess að nota tækifærið til að hugsa til langs tíma og efla stoðirnar.

Stóra hættan er að við missum ,,hæfasta fólkið” úr landi. Jafnframt munu vinnusömustu og best menntuðu útlendingarnir hverfa á brott á meðan hinir verða eftir.

Það er óhuggnanlegur en raunhæfur möguleiki að eftir fallið verði Ísland verstöð og verksmiðjubyggð í Norður Atlantshafi þar sem ungt og hæfileikaríkt fólk flytur í burtu en hinir sitja eftir í drungalegum hverfum grárra fjölbýlishúsa. Þótt niðursveiflan verði erfið er því mikilvægt að menn haldi höfði og hugsi til langs tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu