
Morgunblaðið í dag um Tortolafélög. Segir að félögin séu fyrst og fremst til þess að fela eignarhald eða til að dylja fé og eignir sem eitthvað athugavert er við hvernig hafi myndast.
„Félögin Everest Equities Ltd. og Holt Investment Group Ltd., sem bæði eru skráð á Tortola, voru um tíma á meðal 20 stærstu eigenda í Kaupþingi. Proteus Global Holding S.A., Kargile Portfolio Inc., Peko Investment Company Ltd., Marcus Capital frá Tortola og Zimham Corp og Empennage Inc. frá Panama voru sömuleiðis um tíma á meðal 20 stærstu eigenda Landsbankans, en þar voru eignarhlutir geymdir inni í þessum félögum af bankanum sjálfum sem hluti af kaupréttarkerfi hans. Engar tilkynningar um eignarhald þessara félaga liggja fyrir og því var ómögulegt fyrir aðra þátttakendur á markaði að gera sér grein fyrir hvað bjó að baki þeim.“
Hvernig ætla menn að bregðast við þessu þegar loks er búið að rjúfa þagnarhjúpinn um þessa starfsemi? Styrmir Gunnarsson nefndi Tortola eitt sinn í Staksteinum og ég minntist á eyjuna í Silfrinu.
Nú virðist þetta vera að opnast aðeins – og hvað gera menn þá?
Getum við sent varðskipið Ægi í Karíbahafið?