fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Axlaði Samfylkingin ábyrgð?

Egill Helgason
Laugardaginn 14. febrúar 2009 20:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingibjörg Sólrún svarar Jóni Baldvini með því að Samfylkingin hafi axlað ábyrgð á hruninu með því að slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.

Er víst að það sé almennur skilningur, eða er þetta kannski bara túlkun í þrengsta hring Samfylkingarinnar?

Samfylkingin sat í ríkisstjórn þegar voru framin það sem Þorvaldur Gylfason hefur kallað „mestu afglöp lýðveldissögunnar“ – að leita ekki hjálpar vegna yfirvofandi efnahagsvandræða strax síðastliðið vor.

Í haust fóru Ingibjörg og Geir Haarde svo í áróðursherferð til útlanda, til að reyna að telja mönnum trú um að staða íslenska hagkerfisins væri góð – þvert á staðreyndir.

En ef Ingibjörg Sólrún ætlar að sitja áfram sem formaður – ætlar hún þá líka að vera forsætisráðherraefni flokksins?

Hvað ef Jóhanna stendur sig vel og stemming verður fyrir því að hún sitji áfram?

Það hafa engin teikn verið um að sérstök endurnýjun verði í Samfylkingunni fyrir kosningar. Flestallir þingmennirnir vilja sitja áfram og aðrir sem sækjast eftir þingmennsku eru gamalkunnug andlit úr flokksstarfinu.

Svo er spurning hver verða áhrif þessara yfirlýsinga Jóns. Sjálfur á hann litla möguleika á að verða formaður flokksins. Hann gæti hins vegar haft þau áhrif að endurnýjunarkrafan verði sterkari.

Munum að það gerðist í raun á örfáum dögum að Geir Haarde missti frá sér bæði formennskuna í Sjálfstæðisflokknum og forsætisráðherraembættið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu