fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Búvörumarkaður

Egill Helgason
Föstudaginn 13. febrúar 2009 20:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér á vefnum spunnust í gær umræður um búvörumarkað þar sem bændur gætu selt afurðir sínar nánast beint til neytenda. Það virðist vera að margir séu móttækilegir fyrir svona hugmyndum, en hugsanlega stendur ofstýring og reglugerðafargan í veginum. Og kannski bara framtaksleysi.

Þá er auðvitað ekkert annað að gera en að framkvæma hlutina, kýla á það!

Sigurveig, kona mín, hefur velt þessu mikið fyrir sér, og setur saman þessa grein.

— — —

Númer eitt, tvö og þrjú vantar hér sölusvæði fyrir afurðir bænda þar sem þeir geta selt vörur sínar annaðhvort milliliðalaust eða gegn sanngjarnri söluprósentu.

Víst að það er hægt svo til alls staðar annars staðar í heiminum-af hverju þá ekki hér? Hvað er verið að vernda? Hvorki bóndann né neytandann leyfi ég mér að fullyrða.

Bændur hafa verið hvattir til að þróa afurðir sínar og koma þeim í sölu.

Allt gott um það að segja. Hins vegar vinnur reglugerðin á móti því að sú þróun eigi sér stað.  Heimavinnsla hefur verið litin hornauga – þó svo að annars staðar í heiminum sé greitt dýrara verð fyrir hana en ódýrari og yfirleitt lakari iðnaðarvöru.

Þeir sem eru á móti heimavinnslu afurða,hljóta að vera með lífið í lúkunum þegar þeir þurfa að borða í annara manna húsum.

Að sjálfsögðu þarf einhverjar reglur og eftirlit til að alls öryggis sé gætt,en það er varla nauðsynlegt að hver bóndi þurfi að koma sér upp aðstöðu með 5 stálvöskum og öllu því sem tilheyrir stærri framleiðslu til að koma sér af stað.

Bóndanum hlýtur að vera það í hag að viðskiptavinurinn sé ánægður með vöruna og veikist ekki eða hrökkvi uppaf við að borða hana. Slíkt væri vissulega slæmt fyrir viðskiptin:) Merkilegt nokk,að bóndi eða hver sá aðili sem vill hefja framleiðslu í litlu magni á gæðavöru þurfi að búa við slík heftandi skilyrði.

Á sama tíma má hver sem er koma að framleiðslunni. Það er nefnilega sama hvað sett er upp fullkomin aðstaða – á endanum veltur hreinlætið á aðilanum sem sér um framleiðsluna – þeirra eigin „standördum“ og samviskusemi. Ég neita að trúa að í jafnvel fullkomnustu vnnslustöðvum finnist ekki einhverjir sóðar.

Fyrir mína hönd,treysti ég betur bónda til að framleiða ofaní mig og mína en mörgum hinna stóru vinnslustöðva. Það er einfaldlega bara mín tilfinning að þeim mun nær sem maður kemst „skepnunni“ þess betri sé varan. Og að sá sem hefur lagt metnað sinn og vinnu í að skapa vöru,sé betur treystandi en aðila sem er ekki bundinn vörunni „tilfinningaböndum“.

Framleiðsla bænda er oft á tíðum í litlu magni – það borgar sig því ekki fyrir þá að leggja í mikinn hönnunarkostnað eða auglýsingar.

Ekki er hagkvæmt að fara með vörurnar í stórmarkaði,þar sem þeir eiga oft á tíðum erfitt með að annast eftirspurn og því væri varan ekki til nema lítinn hluta úr ári.

Eins má búast við að verslunin vildi fá sinn skerf í söluhagnaði ef svo vildi til að hún teldi það þjóna hagsmunum sínum á annað borð að taka vöruna inn. Hvað á hún að gera við plássið sem varan tekur þegar varan er búin? Slíkt gæti skapað meiri vinnu og kostnað fyrir verslunin og því ekki hagkvæmt fyrir aðila sem einungis hugsa um hagnaðinn að standa í slíku veseni.

Þá er það dreifingin. Hver á að annast hana?

Það er gott og blessað að verið sé að hvetja bændur til að þróa nýjar vörur, en mikið vantar uppá.

Það vantar að aðstoða þá á allan hátt – frá hugmynd – til fullunninnar vöru.

Til að þessar hvatningar allar virki og skili bæði bændum arði og neytendum gæðavöru á borðið, þarf  að rýmka reglur, aðstoða bændur við að fullvinna hugmyndir á hagkvæman hátt og svo koma þeim í sölu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu