
Hér er ítarlegt viðtal við Steingrím J. í vefritinu Nei.
Þar er meðal annars þessi greining á valdakerfi Sjálfstæðisflokksins:
„Á Íslandi er vald sterks pólitísks framkvæmdarvalds gríðarlega samtvinnað stofnunum og atvinnulífi. Þetta sjáum við einfaldlega á þeim ósköpum sem fóru í gang þegar Sjálfstæðisflokkurinn missti allt í einu völdin. Það er uppnám í öllu kerfinu hjá þeim því þeir eru hluti af risavöxnu neti embættismanna-, stofnana- og fjármálavalds sem nú hefur misst einn þáttinn fyrir borð, sem er ríkisstjórnin.“