
Það má fara í kosningaham og þrasa fram og aftur um álver á Bakka.
En það hefur giska lítið upp á sig. Enginn er að fara að reisa þar álver á næstu mánuðum.
Þess í stað væri nær að upplýsa nú af alvöru hverjar horfur eru á að þarna borgi sig að byggja álver, hvort einhver muni hafa áhuga á því, hvert raforkuverðið þurfi að vera til að þetta sé arðbært í alvörunni, hversu mörg störf sé hægt að skapa, hvort sé hugsanlega hægt að gera eitthvað annað við orkuna.
Og að allar þessar upplýsingar séu aðgengilegar fyrir almenning, helst á einum stað.
En einhvern veginn óttast maður að á þingi sé mikið af fólki sem gengur ekki fyrir neinu öðru en lönguninni til að ná endurkjöri.