fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Kjartan kveinkar sér undan pólitískum ofsóknum

Egill Helgason
Föstudaginn 6. febrúar 2009 07:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki held ég að margir taki undir það með Kjartani Gunnarssyni að það séu hreinsanir þegar Davíð Oddsson og Baldur Guðlaugsson eru látnir fara úr embættum sínum.

Tveir af höfuðpaurunum í valdakerfi Sjálfstæðisflokksins.

Líklega hefði hvorugur þeirra átt að vera þarna til að byrja með.

Eitt af því sem hefur tröllriðið Íslandi er svokölluð útnefningaspilling. Jón Steinsson skrifaði til dæmis þennan pistil þar sem hann sagði að pólitískar mannaráðningar hefðu reynst Íslendingum dýrkeyptar:

Við þurfum að lifa með afleiðingum pólitískra ráðninga ekki bara í Seðlabankanum heldur einnig í dómskerfinu, lögreglunni, utanríkisþjónustunni, heilbrigðiskerfinu, ráðuneytunum, ríkisstofnunum, ríkisfyrirtækjum og víða annars staðar. Við líðum öll fyrir þessar ráðningar á hverjum degi þótt það sé ekki augljóst nema þegar allt ef komið í óefni.

Davíð var augljóslega vanhæfur seðlabankastjóri, ekki aðeins vegna skorts á hagfræðimenntun heldur fyrst og fremst vegna þess pólitíska farangurs sem hann bar inn í Seðlabankann.

Og Baldur Guðlaugsson er lögfræðingur úr innsta hring flokksins sem var dubbaður upp sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.

Honum var, svo að segja, raðað á garðann eins og fleirum. Meira að segja Hæstiréttur varð fyrir þessu.

Og talandi um hreinsanir finnur maður sárlega til þess hvað vantar Þjóðhagsstofnun. Við hefðum verið betur stödd með nákvæmari og hugsanlega óumdeildar upplýsingar um þjóðarbúskapinn.

En Þjóðhagsstofnun var hreinsuð burt – af Davíð Oddssyni forsætisráðherra þegar honum mislíkaði við upplýsingarnar sem þaðan komu.

Í DV í dag er úttekt þar sem er fjallað um hvernig Björgólfur Guðmundsson eignaðist Landsbankann. Þar segir Steingrímur Ari Arason, sem sagði sig úr einkavæðingarnefnd vegna sölu bankans til Björgólfsfeðga, að það hafi verið pólitísk ákvörðun, ekki fagleg, að selja bankann til þeirra. Má geta þess að þegar Steingrímur sagði sig úr nefndinni  lýsti hann því yfir að hann hefði aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum.

Nú segir hann:

Það má segja að það hafi verið pólitískt mat stjórnvalda að það að ná einkavæðingunni fram hratt réttlætti þá aðferð að nánast handvelja kaupendurna. En það má heldur ekki gleyma því að tryggja átti sanngjarnt og eðlilegt verð fyrir hlut ríkisins í bankanum og það var önnur af ástæðunum fyrir afsögn minni að með því að vera svona ákaft í að selja þessum aðilum var ríkið að veikja sína samningsstöðu. Þess vegna náði Samson þessum afslætti á hlut ríkisins í bankanum. Það hefði aldrei átt að gerast undir venjulegum kringumstæðum. Faglegar vinnureglur voru því settar til hliðar við sölu Landsbankans.“

Það fylgdi svo með kaupunum að Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, sat áfram í stjórn bankans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins