
Hér verður ekki annað séð en Kaupþing sé að búa til peninga fyrir vildarvin í stjórnmálunum – mann sem á þessum tíma var nánasti ráðgjafi forsætisráðherra Íslands, pólitískur aðstoðarmaður og síðar borgarfulltrúi.
Á sama tíma var stjórnarformaður Kaupþings til dæmis í nefnd á vegum forsætisráðherra um hvernig mætti gera Ísland að fjármálamiðstöð.
Kannski er þetta löglegt – ég veit ekki – en víst er að það er algjörlega siðlaust.
Það er eins og flokkseigendum Framsóknar og bakhjörlum þeirra í fjármálalífinu hafi ekki þótt nóg að koma sínum mönnum til valda, heldur þurfti líka að gera þá ríka.
Svo hlýtur maður að spyrja hvort fleiri dæmi séu um svona í föllnu bönkunum. Að stjórnmálamenn hafi fengið sérstaka fyrirgreiðslu til að efnast?
Spillingin sem hér hefur verið á mörkum stjórnmála og viðskipta blasir alltaf betur við. Erlendir blaðamenn sem hingað koma furða sig á þessu. Ímyndin var að Ísland væri lítið óspillt land. Í staðinn blasir við einhvers konar blóðskammarsamband peningamanna og pólitíkusa.