ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Aðstoðarmaðurinn fékk tugmilljóna lán

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:24 › 30. janúar 2009
KB-banki veitti Birni Inga Hrafnssyni 60 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í bankanum. Björn Ingi átti hlutabréfin til skamms tíma, seldi þau svo og græddi meira en 20 milljónir króna.

KB-banki veitti Birni Inga Hrafnssyni 60 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í bankanum. Björn Ingi átti hlutabréfin til skamms tíma, seldi þau svo og græddi meira en 20 milljónir króna. Mynd: DV

Björn Ingi Hrafnsson fékk kúlulán frá KB-banka fyrir rúmar 60 milljónir króna árið 2005 til að kaupa hlutabréf í bankanum. Hann var þá aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Björn Ingi seldi hlutabréfin í bankanum og græddi meira en 20 milljónir.

Sérfræðingur segir að Björn Ingi hafi staðið í „hreinu braski“ og efast um siðferðilegt réttmæti viðskiptanna. Björn Ingi segir ekkert ólöglegt við viðskiptin en viðurkennir að spyrja megi um siðferðilegt réttmæti þeirra.

Björn Ingi segir að það hafi ekkert verið óeðlilegt við þessi viðskipti sín. Hann segir aðspurður að hann muni ekki hvort um kúlulán hafi verið að ræða eða ekki. Kúlulán er lán sem veitt er til viðskiptavinar án þess að borgað sé af því þar til undir lok lánstímans, en þá er höfuðstóll lánsins greiddur út í einni greiðslu.

Sérfræðingur í hlutabréfaviðskiptum, sem DV hafði samband við og hefur kynnt sér ársreikninga Caramba, segir að lánið til Björns Inga virðist hafa verið kúlulán. „Það er alveg greinilegt,“ segir sérfræðingurinn.

Sérfræðingurinn segir að það áhugaverða við ársreikningana sé hvernig Björn Ingi hefði staðið í skilum við bankann af láninu ef verðið á hlutabréfunum hefði fallið. Hér er spurningin hvort skuldin við bankann hefði fallið á eignarhaldsfélagið en ekki Björn Inga sjálfan. Eignarhaldsfélagið hefði þá orðið gjaldþrota en ekki Björn Ingi.

Ítarleg umfjöllun um málið í helgarblaði DV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.