fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Heilagar kýr

Egill Helgason
Sunnudaginn 25. janúar 2009 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

12. nóvember skrifaði ég grein undir yfirskriftinni Tiltekt. Þar kom ég með nokkrar hugmyndir um hvernig stjórnvöld gætu unnið  sér inn traust. Mér fannst ég vera dálítið djarfur að skrifa greinina, en stuttu síðar var flest í henni almælt.

Meðal annars var stungið upp á að forstjóri og stjórn Fjármálaeftirlitsins myndu víkja, sömuleiðis bankastjórn og bankastjórar Seðlabankans – og ef til vill líka ráðuneytisstjórinn í fjármálaráðuneytinu.

Að þessu loknu myndu viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra segja af sér – jafnvel af sjálfsdáðum.

Ekkert af þessu hefur gerst fyrr en nú, tveimur og hálfum mánuði seinna, að Björgvin G. Sigurðsson segir af sér – þó ekki fyrr en hann er búinn að reka yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins.

Ég veit ekki hvort það er satt sem sagt er að hann hafi gert þetta upp á sitt eindæmi, án þess að spyrja aðra ráðherra.

Það væri svosem allt í lagi. Varla neinum dettur í hug að ráða forstjóra Fjármálaeftirlitsins upp á nýtt.

Hann fær líka ansi ríflegan starfslokasamning.

Næstu dagar munu leiða í ljós hvort eitthvað svipað muni gerast í samstarfsflokknum. Hvort til dæmis verði einhver hreinsun í Seðlabankanum.

Margir hafa líka furðað sig á því hvílík tök gamli baktjaldamaðurinn Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, virðist hafa í flokknum.

Má eiginlega segja að hann sé heilög kýr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 9 klukkutímum
Heilagar kýr

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur