fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Gamaldags og þröngt viðhorf

Egill Helgason
Föstudaginn 23. janúar 2009 09:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er talað um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Og Samfylkingin hefur frestað framtíðarþingi sínu sem átti að vera um helgina.

Í staðinn virðist stefnan sett á landsfundi í apríl. Þeir yrðu þá hugsanlega einhvers konar upptaktur fyrir kosningar eins og landsfundir stjórnmálaflokka hafa einatt verið undanfarin ár. Frekar skrautsýningar en vettvangur fyrir flokksmenn að ræða pólitík.

En gæti hugsast að þetta sé misskilningur – sem stafi ekki síst af ótta forystumanna við fólkið.

Er ekki einmitt nú tíminn þegar stjórmálamenn ættu að vera í hörku debatt við flokksmenn og almenning? Um efnahagsmál, skuldirnar, framtíð Íslands, stöðu okkar í heiminum, ábyrgð og réttlæti?

Er það ekki eitthvað svoleiðis sem fólk vill sjá á svona fundum – meðfram nauðsynlegri endurnýjun.

En í staðinn virðist þetta allt snúast um setu í ríkisstjórn og þrönga flokkapólitík.

Það er gamaldags viðhorf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur