
Á þessum degi sér maður að einn af jöfrum íslenskra bókmennta, Helgi Hálfdanarson, er dáinn í hárri elli, 97 ára. Hann var fæddur 1911.
Eftir hann liggur ótrúlegt verk, þýðingar á Shakespeare, grískum harmleikjum, Kóraninum, kínverskum og japönskum ljóðum, Hóratíusi og ýmsum öðrum kveðskap.
Annars var hann upphaflega lyfsali, stundaði lyfsölu á Húsavík og í Reykjavík. Stundaði svo kennslu; kenndi meðal annars stærðfræði í Kennaraskólanum.
Helgi var ekki mikið á mannamótum. Við ræddum það stundum þegar við vorum á Alþýðublaðinu við Hrafn Jökulsson að af öllum mönnum langaði okkur mest að taka viðtal við Helga. Gott ef við hringdum ekki í hann.
En Helgi vildi vera nánast ósýnilegur. Í safni blaðsins var til gömul og velkt mynd af honum. Við veltum því fyrir okkur hvort við ættum að bæta úr og senda paparazza til að taka mynd af þessu bókmenntaídoli okkar.
Það var þó aldrei úr.
En Helgi var einn af þeim mönnum sem maður bar nánast takmarkalausa virðingu fyrir.