fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Menn sem spila djarft

Egill Helgason
Fimmtudaginn 22. janúar 2009 11:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt þessari frétt í Morgunblaðinu hyggjast Jón Ásgeir og félagar fara í skaðabótamál vegna yfirtöku ríkisins á Glitni. Þeir ætla að gera þetta í nafni hins fræga útrásarfyrirtækis FL-Group/Stoða.

Ég held reyndar að þeir séu að djóka nema kannski þeir haldi að með þessu styrki þeir samningsstöðu sína.

Það má minna á að mál Stíms sem tengist þessum aðilum er – væntanlega – til rannsóknar. Það fjallar um stórfelldar blekkingar í þeim tilgangi að halda uppi fölsku verði á hlutabréfum í FL-Group og Gltitni.

Og að FL-Group/Stoðir er einnig til rannsóknar vegna mála sem tengjast óhóflegum rekstrarkostnaði og einbeittum vilja stjórnenda til að mjólka fjármagn úr félaginu til eigin nota.

Í greininni koma einnig fram hugmyndir um hvernig eigi að skera FL-Group/Stoðir niður úr snörunni. Félagið skuldar 252 milljarða sem hlýtur að teljast ótrúleg fjárhæð.

Ég minni á orð Gylfa Magnússonar hagfræðings sem hefur sagt að ekki eigi að bjarga stóru eignarhaldsfélögunum enda hafi þau verið meinsemd í íslensku efnahagslífi:

Ég get tekið undir það sjónarmið að ekki sé sanngjarnt að bjarga fjárfestingarfélögum með lánalengingum, eða breytingu skulda í eignarhluti, eins og öðrum fyrirtækjum sem eru í verðmætasköpun og skapa fólki atvinnu. Það er erfitt að sjá réttlætinguna fyrir því að halda einhverjum eignarhaldsfélögum gangandi. Það má benda á að þessi félög og eignatengsl þeirra á milli voru ein af meinsemdunum í gamla hagkerfinu sem gerðu það ógagnsætt og drógu úr samkeppni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni

Grímur Sæmundsen: Ógnin af eldsumbrotunum verður tækifæri í framtíðinni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar

Grímur Sæmundsen: Gjörbreytt samkeppnisumhverfi og rétti tíminn til að gera breytingar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur