
Enginn ráðherra Samfylkingarinnar mætir á fund hjá flokksfélaginu í Reykjavík þar sem er samþykkt að slíta stjórnarsamstarfinu.
Á fundinum er því fagnað með lófataki þegar borin er fram hugmynd um að allir núverandi þingmenn Samfylkingarinnar víki.
Ingibjörg Sólrún á að hafa fullvissað Geir Haarde um að stjórnin sitji áfram.
Á maður að líta þannig á að almennir félagar í Samfylkingunni séu að setja forystuna og ráðherrana af?
Annars er atburðarásin mjög hröð þessa dagana.
Það er farið að tala um að Geir segi af sér á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Sumir flokksmenn vilja að Þorgerður Katrín fari líka.
Bjarni Benediktsson er nefndur sem arftaki. Bjarni er af einni elstu og helstu valda- og peningaætt landsins og hefur verið virkur í viðskiptalífinu. Maður er ekki viss um að það sé vænlegt til að falla í kramið hjá kjósendum.
Annars er umburðarlyndi fólks gagnvart stjórnmálaflokkunum einstaklega lítið þessa dagana og sömuleiðis áhuginn á þeim. Það heyrast háværar kröfur um róttækar kerfisbreytingar, ekki kosningar og svo enn eina samsteypustjórnina samkvæmt gamla kerfinu.
Það var erfitt að gera upp á milli þess hvor var vandræðalegri Geir Haarde eða Steingrímur J. Sigfússon í Kastljósinu í kvöld.
Skein einhvern veginn í gegn að hvorugur þeirra hefði svör.