fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

“Ef vér slítum í sundur lögin, slítum við og friðinn”

Egill Helgason
Miðvikudaginn 21. janúar 2009 09:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Friðrik Erlingsson sendi mér þessa grein.

— — —

Forseti Alþingis barði sér á brjóst og bað um að “elsta löggjafarsamkunda heimsins” fengi vinnufrið fyrir mótmælendum. Dag eftir dag tala ráðamenn niður til þjóðarinnar, svona líkt og þegar Jón Loftsson í Odda býsnaðist yfir því að “skillitlir menn” væru að drepa höfðingja. Þá var honum nóg boðið.
En það vill nú svo til að þjóðin samanstendur af “skillitlum mönnum”, fólki sem er einfaldlega að reyna að draga fram lífið og spila eins vel úr því sem það hefur í höndunum. Ráðamenn og yfirvöld hafa ekki verið að störfum fyrir þetta fólk; ráðamenn hafa verið að hygla höfðingjunum á kostnað þjóðarinnar og ætla nú að vernda höfðingjana og streitast um leið við að sitja sem fastast. Er furða að fólki sé nóg boðið. “Ríkisstjórn Íslands” hefur sýnt það að hún er ekki “Ríkisstjórn Íslendinga,” a.m.k. ekki meirihluta þjóðarinnar, þótt Geir Haarde þykist eiga meirihlutann á Alþingi, sem nú hefur verið niðurlægt af ráðamönnum sjálfum.

Við Íslendingar erum lánsöm þjóð að því leyti að í hinum gömlu bókum okkar eigum við sjálfsmynd sem við getum leitað til þegar erfiðleikar steðja að. Hver er til dæmis kjarnaboðskapur hinnar margbrotnu Njálu? Hann er í raun sá sami og fólst í orðum Þorgeirs Ljósvetningagoða í þeirri ræðu sem Ari Þorgilsson fróði lagði honum í munn í Íslendingabók sinni: “Ef vér slítum í sundur lögin, slítum við og friðinn.” Sættir og málamiðlun í deilum eru lykilhugtök í friðarboðskap þeirra bóka sem skrifaðar voru á mestu ófriðartímum þjóðarinnar. En hvernig skildu þessir menn hugtakið lög? Lög voru alls ekki lagabókstafurinn fyrst og fremst; lögin voru samfélagið sjálft, hin siðræna undirstaða, rétt hegðun gagnvart náunganum, heiðvirðleiki. Ef lögin voru slitinn, ef samfélagið var brotið upp var ófriður skollinn á. Nú hafa þessi varnaðarorð Þorgeirs Ljósvetningagoða orðið að raunveruleika á okkar tímum, þegar ráðamenn þjóðarinnar hafa “slitið í sundur lögin.”

Hugmynd Njarðar P. Njarðvík um endurheimt lýveldisins, um tafarlausa setningu neyðarstjórnar til að semja nýja stjórnarskrá, sem síðan skal kosið eftir, er einhver besta hugmynd sem upp hefur komið í þeim Ragnarökum sem nú ganga yfir þjóðina. Hvar í flokki sem menn annars standa þá hljóta þeir að horfa blákalt á þá nöturlegu staðreynd að flokkarnir hafa brugðist þjóðinni, hvaða nafni sem þeir flokkar nefnast. Þess vegna þarf neyðarstjórnin einnig að endurskoða kosningalögin frá grunni.

Við þurfum að velja fólk í þessa neyðarstjórn sem öll þjóðin ber traust til, fólk sem við þekkjum að viti og réttlæti. Þessi stjórn þarf að verða nokkurs konar Öldungaráð, sem gjarnan mætti sitja áfram eftir að ný stjórnarskrá hefur verið samþykkt. Fólk einsog t.d. Njörður P. Njarðvík, Páll Skúlason, Guðrún Pétursdóttir, Þorvaldur Gylfason, Guðrún Agnarsdóttir, Jónas Haralz, svo einhverjir séu nefndir, ættu að sitja í Öldungaráði sem þessu.

Eina manneskjan sem gæti leitt stjórn eða ráð sem þetta, tel ég vera Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. Ég held að engin einn einstaklingur sé þess umkomin með jafn afgerandi hætti og hún, að leiða málefnavinnu fyrir hið nýja lýðveldi til lykta. Af ráðamönnum síðustu áratuga ber hún höfuð og herðar yfir þá alla.

Ölungaráðið/neyðarstjórnin ætti að vera skipuð okkar bestu konum og körlum, fólki sem hefur langa reynslu af lífinu, fólki sem glímt hefur við sjálft sig og haft sigur; fólki sem æðrast ekki, heldur býr yfir þess konar viti og réttlæti, sem þjóðin hefur svo brýna þörf fyrir núna, ef hún á að eiga einhverja framtíðarvon.

Það er nefnilega þjóðin sjálf sem þarf vinnufrið; frið fyrir vanhæfi núverandi ráðamanna, frið fyrir valdabrölti lýðskrumara, frið til þess að byggja upp nýtt lýðveldi, sem á möguleiki á lengri og farsælli líftíma en það lýðveldi sem nú er liðið undir lok.

Friðrik Erlingsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins